Disposable Comfort High
Guldmann Disposable Comfort High einnota heilseglið er hannað fyrir einstaklinga sem hafa litla eða enga hreyfigetu í höfði og efri hluta líkamans.
Lesa meiraEinnota segl
- Aukinn stuðningur við mjaðmir og læri
- Til notkunar þar sem gerðar eru mjög miklar hreinlætiskröfur
- Lyftigeta allt að 255 kg
Stærðir og vörunúmer
| Vörunúmer | Stærð | Efni |
|---|---|---|
| GU-277035 | XS - 5. Stk. | Polyester |
| GU-277045 | S - 5. Stk. | Polyester |
| GU-277055 | M - 5. Stk. | Polyester |
| GU-277065 | L- 5. Stk. | Polyester |
| GU-277075 | XL - 5. Stk. | Polyester |
| GU-277085 | 2XL - 5. Stk. | Polyester |
Lýsing
| Guldmann Disposable Comfort High einnota heilseglið er hannað fyrir einstaklinga sem hafa litla eða enga hreyfigetu í höfði og efri hluta líkamans. Seglið styður allan líkamann ásamt höfði og er búið stillanlegum höfuðstuðningi sem hægt er að fella niður þegar hans er ekki þörf. Á fótólunum eru tvær viðbótar lykkjur sem hægt er að nota til að halda lærum notandans í hlutlausri stöðu eða til að skapa aukið aðgengi við hreinlætisaðgerðir. Seglið hentar vel til lyftinga úr og í liggjandi stöðu, svo sem úr rúmi eða af gólfi, sem og úr og í sitjandi stöðu. Það er einnig hentugt fyrir einstaklinga með einhliða eða tvíhliða aflimanir þar sem hægt er að krossleggja fótólarnar undir báðum fótum, eða nota aðskildan stuðning undir hvorum fæti fyrir notendur sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir þrýstingi. Disposable Comfort High er eingöngu ætlað einum notanda og má ekki þvo. Það hentar sérstaklega vel þar sem gerðar eru miklar kröfur um hreinlæti eða þar sem aukin hætta er á smiti og sýkingum. Farga skal seglinu þegar notandi útskrifast eða strax eftir notkun ef það hefur blotnað eða óhreinkast. Seglið fæst í nokkrum stærðum, er framleitt úr pólýesterefni og hefur hámarks lyftigetu upp á 255 kg. Það er samhæft við allar loftlyftur og færanlegar lyftur frá Guldmann. Rétt val á segli er mikilvægt til að tryggja öruggar, þægilegar og virðulegar tilfærslur fyrir bæði notanda og umönnunaraðila. |










