Um okkur
Titus hefur sérhæft sig í sölu og ráðgjöf á búnaði fyrir heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og einstaklinga.
Traust Þjónusta í 10 ár
Við vinnum með leiðandi framleiðendum og leggjum áherslu á áreiðanleika, þjónustu og faglega ráðgjöf.
Titus ehf. var stofnað árið 2016 af hjónunum Kristínu Jónu Grétarsdóttur og Baldvini Bjarnasyni. Markmið fyrirtækisins er að auka lífsgæði fatlaðra og hreyfihamlaðra einstaklinga í samfélaginu með því að bæta aðgengi, efla ferlimál og stuðla að betra starfsumhverfi innan heilbrigðisþjónustu.
Frá upphafi hefur Titus lagt áherslu á samfélagslega ábyrgð og að veita lausnir sem nýtast bæði einstaklingum og stofnunum. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á tækjum, búnaði og lausnum fyrir heilbrigðisgeirann og hefur byggt upp öflugt vöruúrval sem þjónar fjölbreyttum þörfum viðskiptavina.
Titus býður einnig upp á alhliða þjónustu sem felur í sér ráðgjöf, uppsetningu, þjálfun og eftirfylgni. Fyrirtækið hefur á að skipa sérhæfðu starfsfólki með víðtæka reynslu á sínu sviði og rekur eigið þjónustusvið sem sér um viðhald og þjónustu á þeim vörum og búnaði sem fyrirtækið flytur inn og selur.
Allur lager Titusar er staðsettur í húsnæði fyrirtækisins og er aðgengilegur allan sólarhringinn. Með fagmennsku, þjónustulund og sérþekkingu leggur Titus áherslu á að vera traustur samstarfsaðili fyrir heilbrigðisstofnanir, fyrirtæki og einstaklinga um allt land.

Traust þjónusta
Við leggjum áherslu á áreiðanleika, faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu frá fyrsta degi.
Reynslumikið starfsfólk
Sérhæft starfsfólk með víðtæka þekkingu á búnaði og lausnum fyrir heilbrigðisgeirann.
Uppsetning og þjónusta
Við sjáum um uppsetningu, þjálfun og eftirfylgni ásamt viðhaldi og þjónustu hvar sem er á landinu.
Alltaf til taks
Lager okkar er staðsettur í Kópavogi og aðgengilegur allan sólarhringinn.
