CUDA LLS-5500 þráðlaust LED höfuðljós
Vörunr. HE-LLS-5500-KIT
CUDA LLS-5500 er þráðlaust LED höfuðljós fyrir heilbrigðisstarfsfólk við skoðanir og aðgerðir.
Lesa meira- Þráðlaust – rafhlaða á höfuðbandi
- Stillanlegur ljósstyrkur og ljósblettur
- Tvær rafhlöður og hleðslutæki fylgja
Útfærsla og vörunúmer
| Vörunúmer | Útfærsla |
|---|---|
| HE-LLS-5500-KIT | Sett með tveimur rafhlöðum og hleðslutæki |
Lýsing
CUDA LLS-5500 er þráðlaust LED höfuðljós fyrir heilbrigðisstarfsfólk við skoðanir og aðgerðir. Rafhlaðan situr á höfuðbandinu, þannig að ekki þarf snúru að ytri ljósgjafa eða rafhlöðupakka í belti.
Hægt er að stilla bæði ljósstyrk og stærð ljósbletts eftir verkefni. RCS-höfuðbandið veitir stuðning við hnakka og dreifir þyngdinni. Rafhlaðan er aðgengileg til skipta og vísir á hlið höfuðbandsins sýnir þegar hleðsla er lítil.
LLS-5500-KIT settið inniheldur LED höfuðljós, tvær endurhlaðanlegar rafhlöður og hleðslutæki.









