GL5.2 Hjólalyftari

Guldmann GL5.

Lesa meira
  • Tekst á við flestar lyftingar og tilfærslur
  • Hentar bæði fyrir háar og lágar lyftur
  • Notendavæn og einföld í notkun

Lýsing

Guldmann GL5.2 Mobile lifter er færanleg gólflyfta og sveigjanlegur valkostur við loftfest lyfti- og tilfærslukerfi. Lyftan fæst í tveimur útgáfum með 155 kg og 205 kg lyftigetu. Báðar útgáfur eru með sjálfvirkri lyftihreyfingu og rafdrifinni breiddarstillingu á fótum. Hámarkslyftihæð er 1.759 mm, sem gerir kleift að lyfta notanda beint upp af gólfi. GL5.2 ræður við fjölbreyttar lyftingar og tilfærslur sem geta komið upp í faglegu umönnunarumhverfi. Hönnunin veitir umönnunaraðila gott vinnurými og stuðlar þannig að þægindum og öryggi notandans. Lyftunni má stjórna með handstýringu eða stjórnstöð og lipur hjól ásamt vinnuvistvænum ýtihandföngum gera hana auðvelda í stýringu, jafnvel þar sem pláss er takmarkað. Hún hentar meðal annars vel þegar lyfta þarf einstaklingi af gólfi eftir fall. Hægt er að hlaða rafhlöðuna í lyftunni sjálfri eða taka hana úr og hlaða sérstaklega. GL5.2 er einföld í notkun og hönnuð til að styðja við öruggar og skilvirkar daglegar tilfærslur.