GTP1 Transfer platform
Guldmann GTP1 Transfer platform er handknúinn, færanlegur tilfærslupallur sem auðveldar flutning standandi og að hluta sjálfbjarga notenda.
Lesa meira- Auðvelt og öruggt að stjórna
- Sveigjanlegur og skilvirkur búnaður
- Lág innstigshæð
Lýsing
| Guldmann GTP1 Transfer platform er handknúinn, færanlegur tilfærslupallur sem auðveldar flutning standandi og að hluta sjálfbjarga notenda. Pallurinn hentar í fjölbreyttu umönnunarumhverfi og styður við virka og örugga standandi tilfærslu, um leið og hann stuðlar að öruggri og vinnuvistvænni vinnuaðstöðu fyrir umönnunaraðila. Með virkri þátttöku í tilfærslunni getur notandinn nýtt og þjálfað vöðvastyrk og jafnvægi. Pallurinn er stöðugur og sterkbyggður og veitir góðan stuðning við stuttar standandi tilfærslur; einnig er hægt að nota tilfærslubelti til að auka stuðning. Innstigshæðin er aðeins 30 mm og því er auðvelt að staðsetja pallinn þétt upp við hjólastól, salerni eða sturtustól. Stillanlegur og mjúkbólstraður stuðningur við neðri fótleggi eykur þægindi og öryggi. GTP1 hentar meðal annars við salernis- og sturtuferðir, við æfingar í að standa upp og setjast niður og til að viðhalda standandi stöðu. Pallurinn tekur lítið pláss, er auðveldur í stýringu og má ýta, draga eða snúa um eigin ás. Einnig er hægt að aðskilja efri og neðri hluta hans til að auðvelda flutning milli staða. Hámarksburðargeta er 175 kg. |














