CUDA LLS-5500 þráðlaust LED höfuðljós

Vörunr. HE-LLS-5500-KIT

CUDA LLS-5500 er þráðlaust LED höfuðljós fyrir heilbrigðisstarfsfólk við skoðanir og aðgerðir.

Lesa meira
  • Þráðlaust – rafhlaða á höfuðbandi
  • Stillanlegur ljósstyrkur og ljósblettur
  • Tvær rafhlöður og hleðslutæki fylgja
Útfærsla og vörunúmer
VörunúmerÚtfærsla
HE-LLS-5500-KITSett með tveimur rafhlöðum og hleðslutæki

Lýsing

CUDA LLS-5500 er þráðlaust LED höfuðljós fyrir heilbrigðisstarfsfólk við skoðanir og aðgerðir. Rafhlaðan situr á höfuðbandinu, þannig að ekki þarf snúru að ytri ljósgjafa eða rafhlöðupakka í belti.

Hægt er að stilla bæði ljósstyrk og stærð ljósbletts eftir verkefni. RCS-höfuðbandið veitir stuðning við hnakka og dreifir þyngdinni. Rafhlaðan er aðgengileg til skipta og vísir á hlið höfuðbandsins sýnir þegar hleðsla er lítil.

LLS-5500-KIT settið inniheldur LED höfuðljós, tvær endurhlaðanlegar rafhlöður og hleðslutæki.